Teikningar sumarhúsa er        okkar sérfag

Teiknivangur mætir fjölbreyttum þörfum þeirra viðskiptavina sem vilja byggja sumarhús. Í boði eru ýmsar gerðir teikninga, annarsvegar af stöðluðum lausnum sem hafa sannað gildi sitt og hinsvegar sérhönnuðum sumarhúsum í takt við séróskir viðskiptavina. Frekari upplýsingar fást í síma 568 1317 eða á teiknistofunni að Auðbrekku 10 í Kópavogi, á 2. hæð. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið teiknivangur@teiknivangur.is
Saga Teiknivangs
Teiknivangur var stofnaður árið 1979 og hafa teikningar sumarhúsa verið í sífelldri þróun síðan. Fjöldi sumarhúsa hafa verið byggð eftir teikningum frá Teiknivangi, ár hvert, í flestum sveitarfélögum landsins.
TEIKNIVANGUR býður upp á:
    Staðlaðar teikningar húsa, með eða án svefnlofts og kjallara
•    Teikningar sérhannaðra húsa
    Teikningar af breytingum á núverandi húsum, viðbyggingum, geymsluskúrum og gesthúsum
TEIKNIVANGUR er í samstarfi við fagaðila sem geta veitt viðskiptavinum alla aðra þjónustu við byggingu sumarhúss, allt frá því teikning er keypt og fram að fullbúnu sumarhúsi.
     Teiknivangur   I   Auðbrekka 10   I   200 Kópavogur   I   Kennitala: 680979-0819   I   S: 568 - 1317   I    teiknivangur@teiknivangur.is